Hér finnur þú svör við því sem viðskiptavinir spyrja oftast um. Fannstu ekki svarið? Hafðu samband og við aðstoðum þig með glöðu geði.

Frí sending

á pöntunum yfir 20.000 kr.

1–3 virkir dagar

afhendingartími um allt land

14 daga skilaréttur

á óopnuðum vörum

Pantanir og sendingar

Hvað kostar sendingin?+

Sendingarkostnaður reiknast í körfunni eftir því hvaða afhendingarleið þú velur. Frí sending á öllum pöntunum yfir 20.000 kr.

Hversu langan tíma tekur afhending?+

Pantanir berast að jafnaði innan 1–3 virkra daga.

Hvaða afhendingarleiðir eru í boði?+

Pósturinn, Dropp heimsending, Dropp afhendingarstaðir (Hagkaup Garðabæ, N1 Fossvogi og Olís Garðabæ) eða þú sækir pöntunina til okkar.

Get ég sótt pöntunina sjálf/ur?+

Já, það er frítt að sækja í ONE Studio, Urriðaholtsstræti 2, á opnunartíma (virka daga 9:00–17:00). Við sendum þér tölvupóst þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.

Sendið þið út fyrir landsteinana?+

Eins og er sendum við eingöngu innanlands.

Greiðslur

Hvernig get ég greitt?+

Þú greiðir með debet- eða kreditkorti í öruggri greiðslugátt.

Er virðisaukaskattur innifalinn?+

Já, öll verð eru með VSK.

Skil og skipti

Get ég skilað eða skipt vöru?+

Já. Þú hefur 14 daga frá móttöku til að skipta eða skila vöru. Við bjóðum fyrst skipti í aðra vöru, en kjósir þú frekar endurgreiðslu færðu hana í samræmi við lög um neytendasamninga. Varan þarf að vera óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila opnuðum hár- og húðvörum.

Hvernig skila ég vöru?+

Hafðu samband á onestudio@onestudio.is eða komdu með vöruna til okkar ásamt kvittun.

Varan mín er gölluð eða ég fékk ranga vöru. Hvað geri ég?+

Hafðu samband við okkur sem fyrst og við leysum málið þér að kostnaðarlausu.

Vörur og ráðgjöf

Hvaða vara hentar mínu hári?+

Fagfólk okkar í hárgreiðslu veitir þér persónulega ráðgjöf á stofunni á opnunartíma.

Varan sem ég vil er uppseld. Hvenær kemur hún aftur?+

Hafðu samband og við látum þig vita um leið og hún kemur aftur á lager.

Tímabókanir

Hvernig bóka ég tíma?+

Þú bókar tíma á Noona eða hringir í síma 571 8177.

Fannstu ekki svarið?

Við svörum fljótt á virkum dögum.

Hringdu: 571 8177 Sendu tölvupóst