Skilastefna

Hjá ONE Studio viljum við að þú sért ánægð/ur með kaupin. Hér að neðan er farið yfir skila- og skiptarétt þinn þegar þú verslar í vefverslun okkar, í samræmi við lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og lög nr. 48/2003 um neytendakaup.

14 daga skilaréttur

Þú hefur 14 daga frá móttöku vöru til að skipta henni eða skila. Við bjóðum fyrst skipti í aðra vöru, en kjósir þú frekar endurgreiðslu færðu hana að sjálfsögðu.

Skilyrði

  • Varan þarf að vera óopnuð, ónotuð og í upprunalegum umbúðum með órofnu innsigli.
  • Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila hár- og húðvörum eða öðrum hreinlætisvörum sem hafa verið opnaðar eða innsigli rofið.
  • Kvittun eða pöntunarnúmer þarf að fylgja.

Hvernig skila ég vöru?

Hafðu samband á onestudio@onestudio.is eða í síma 571 8177 innan 14 daga frá móttöku og tilgreindu pöntunarnúmer. Þú getur komið með vöruna til okkar í Urriðaholtsstræti 2 á opnunartíma eða sent hana til okkar.

Endurgreiðsla

Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að tilkynning um skil berst okkur, með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin. Við áskiljum okkur rétt til að bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur. Sé pöntun skilað í heild sinni er upphaflegur sendingarkostnaður einnig endurgreiddur.

Sendingarkostnaður við skil

Kaupandi greiðir sendingarkostnað þegar vöru er skilað eða skipt, nema varan sé gölluð eða röng vara hafi verið afhent.

Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara reynist gölluð eða þú fékkst ranga vöru skaltu hafa samband við okkur sem fyrst. Við bætum úr því með viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu, þér að kostnaðarlausu, í samræmi við lög um neytendakaup. Kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu.

Seljandi

Saxa SI ehf. (ONE Studio)
Kt. 640725-0440 · VSK-nr. 158790
Urriðaholtsstræti 2, 210 Garðabær
Sími: 571 8177 · Netfang: onestudio@onestudio.is