Almennir skilmálar
Afhending
1–3 virkir dagar · frí sending yfir 20.000 kr.
Skil og skipti
14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum
Persónuvernd
Við seljum aldrei upplýsingar þínar
Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum í vefverslun ONE Studio á onestudio.is. Með því að ganga frá pöntun samþykkir kaupandi skilmálana. Um viðskiptin gilda að öðru leyti lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
1. Seljandi
Saxa SI ehf. (ONE Studio)
Kt. 640725-0440 · VSK-nr. 158790
Urriðaholtsstræti 2, 210 Garðabær
Sími: 571 8177 · Netfang: onestudio@onestudio.is
2. Pantanir
Þegar pöntun hefur verið gerð færð þú staðfestingu senda í tölvupósti. Við áskiljum okkur rétt til að hætta við pöntun, t.d. ef vara er uppseld eða verð er rangt skráð vegna augljósrar villu. Í slíkum tilvikum er haft samband við kaupanda og greiðsla endurgreidd að fullu.
3. Verð og greiðslur
Öll verð eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist við í körfunni eftir því hvaða afhendingarleið er valin, nema um fría sendingu sé að ræða. Greitt er með greiðslukorti í öruggri, dulkóðaðri greiðslugátt og ONE Studio hefur ekki aðgang að fullum kortaupplýsingum. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verðum og leiðrétta villur án fyrirvara.
4. Afhending
Pantanir eru sendar með Póstinum eða Dropp, eða sóttar í verslun okkar í Urriðaholtsstræti 2, Garðabæ. Pantanir berast að jafnaði innan 1–3 virkra daga og frí sending er á pöntunum yfir 20.000 kr. Nánari upplýsingar eru í sendingarstefnu okkar.
5. Skilaréttur og skipti
Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku til að skipta eða skila vöru. Varan þarf að vera óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Við bjóðum fyrst skipti í aðra vöru en kaupandi á rétt á endurgreiðslu kjósi hann það. Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila opnuðum hár- og húðvörum. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil nema vara sé gölluð eða röng. Nánari upplýsingar eru í skilastefnu okkar.
6. Gallaðar vörur
Reynist vara gölluð skal kaupandi tilkynna það eins fljótt og auðið er. Kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu, í samræmi við lög um neytendakaup. Gölluð vara er bætt, henni skipt eða hún endurgreidd, kaupanda að kostnaðarlausu.
7. Vörulýsingar og myndir
Við leggjum okkur fram um að vörulýsingar, verð og myndir séu réttar. Litir og útlit geta þó verið örlítið frábrugðnir eftir skjám og birtu.
8. Persónuvernd
Farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál og þær aldrei afhentar þriðja aðila nema til að ljúka viðskiptum, t.d. til sendingar- eða greiðsluþjónustuaðila. Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnu okkar.
9. Ágreiningur og lög
Komi upp ágreiningur reynum við ávallt að leysa hann í góðu. Náist ekki samkomulag getur kaupandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (kvth.is). Um skilmálana gilda íslensk lög og rísi mál vegna þeirra skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
10. Breytingar á skilmálum
ONE Studio áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Þeir skilmálar sem í gildi eru þegar pöntun er gerð gilda um þau viðskipti.
Skilmálar þessir tóku gildi 6. október 2026.
