Sendingarstefna
Við sendum pantanir um allt land og bjóðum upp á nokkrar afhendingarleiðir svo þú getir valið það sem hentar þér best.
Afhendingarleiðir
- Pósturinn: sent heim eða á pósthús.
- Dropp heimsending: sent beint heim að dyrum.
- Dropp afhendingarstaðir: Hagkaup Garðabæ (skápur), N1 Fossvogi og Olís Garðabæ.
- Sækja í verslun: frítt að sækja í ONE Studio, Urriðaholtsstræti 2, 210 Garðabæ.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður reiknast í körfunni eftir því hvaða afhendingarleið er valin. Frí sending er á öllum pöntunum yfir 20.000 kr.
Afhendingartími
Pantanir berast að jafnaði innan 1–3 virkra daga. Á álagstímum, t.d. fyrir jól, getur afhending tekið lengri tíma.
Sækja í verslun
Ef þú velur að sækja pöntunina sendum við þér tölvupóst þegar hún er tilbúin. Hægt er að sækja á opnunartíma, virka daga kl. 9:00–17:00. Athugið að opnunartími getur einnig farið eftir tímabókunum fagfólks okkar hverju sinni.
Sendingar erlendis
Eins og er sendum við eingöngu innanlands.
Tjón eða týndar sendingar
Ef sending skemmist í flutningi eða berst ekki skaltu hafa samband við okkur sem fyrst og við finnum lausn. Áhætta af vöru færist yfir til kaupanda þegar hún hefur verið afhent.
Uppseldar vörur
Ef vara reynist uppseld eftir að pöntun hefur verið gerð höfum við samband við þig og bjóðum aðra vöru eða endurgreiðum að fullu.
Seljandi
Saxa SI ehf. (ONE Studio)
Kt. 640725-0440 · VSK-nr. 158790
Urriðaholtsstræti 2, 210 Garðabær
Sími: 571 8177 · Netfang: onestudio@onestudio.is
