HH Simonsen True Divinity MK2 Black

Almennt verð
35,990 kr
Almennt verð
Tilboðsverð
35,990 kr
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

True Divinity MK2 er vandað sléttujárn frá HH Simonsen í svörtu, þróað í samstarfi við leiðandi hárgreiðslufólk. Grannt form járnsins gerir það hentugt hvort sem á að slétta hárið, krulla það eða gera liði.

Helstu eiginleikar: teflonhúðaðar plötur með túrmalíni og olíu sem skilja hárið eftir silkimjúkt, snertistýrt hitastig frá 160 til 230°C, hitnar á um 10 sekúndum og slekkur sjálfkrafa á sér í síðasta lagi 60 mínútum eftir notkun (svefnhamur). 3 m löng gúmmísnúra með snúningslið auðveldar vinnuna.

Í kassanum: hitaþolinn geymslupoki.

3 ára ábyrgð er á öllum sléttu- og krullujárnum frá HH Simonsen sem keypt eru á viðurkenndum sölustöðum HH Simonsen á Íslandi.

Við mælum með!