JRL Ghost Kit 1

Almennt verð
85,990 kr
Almennt verð
Tilboðsverð
85,990 kr
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Ghost Kit 1 frá JRL inniheldur tvær þráðlausar vélar í hvítri Ghost-útgáfu: Ghost 2020C klippur og Ghost 2020T trimmer. Settið er ætlað rökurum og hárgreiðslufólki; klippurnar fyrir grófa vinnu, blöndun og fade og trimmerinn fyrir nákvæmar línur, útlínur og skegg.

Helstu eiginleikar: báðar vélarnar eru með einkaleyfisvarða Reset IQ hleðslutækni sem tryggir fulla hleðslu og lengir líftíma rafhlöðunnar, Smart-Clip tækni sem eykur hraða mótorsins þegar viðnám eykst og hljóðláta mótora. Klippurnar: allt að 5 klst. notkunartími, hleðsla á 3 klst. (5 klst. með Reset IQ hleðslu), tveir hraðar (6.000 og 7.500 snún./mín.), Onyx Fade blað sem má stilla á núll bil, Cool Blade tækni sem heldur blaðinu svalara, stilliarmur með 5 læstum stöðum og LED skjár sem sýnir rafhlöðustöðu. Trimmerinn: 8.200 snún./mín., allt að 3,5 klst. notkunartími og opið EZ-GAP T-blað sem stillt er á núll bil án verkfæra.

Í kassanum: Ghost 2020C klippur, Ghost 2020T trimmer, hleðslustöð fyrir hvora vél, 10 kambar (#0,5 til #8), blaðhlífar, hreinsibursti, smurolía og skrúfjárn.

Við mælum með!