Love Curl cleansing cream (Sjampó/næring)

Almennt verð
7,490 kr
Almennt verð
Tilboðsverð
7,490 kr
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Love Curl Cleansing Cream frá Davines er milt hreinsikrem, sjampó og næring í einu (co-wash), fyrir krullað og liðað hár, ekki síst hár sem hættir til að verða þurrt eða úfið.

Hreinsar hárið mildilega og gefur raka um leið, mýkir það og dregur úr úfnu hári. Krullurnar verða skýrari, fjaðurmagnaðri og fá meiri fyllingu. Ekki þarf hárnæringu á eftir.

Notkun: Berið ríflegt magn í rakt hárið og nuddið vel. Látið bíða í um 5 mínútur og skolið. Í þriðja hverjum þvotti er gott að nota Love Curl sjampó og hárnæringu eða maska í staðinn.

Við mælum með!