Love Curl sjampó

Almennt verð
4,390 kr
Almennt verð
Tilboðsverð
4,390 kr
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Krullusjampó úr Love Curl línunni frá Davines sem gefur raka, fyrir liðað og krullað hár.

Hreinsar hárið mildilega og gefur raka. Eykur teygjanleika, mýkt og glans svo krullurnar verða teygjanlegar og fjaðurmagnaðar. Inniheldur þykkni úr aldinkjöti baobab-ávaxtarins með Regenerative Organic Certified vottun, frá kvennasamtökum í Banfora í Búrkína Fasó. Það inniheldur kolvetni sem binda raka í hárinu og andoxunarefni sem verja það.

Notkun: Berið í blautt hárið, nuddið og skolið vel. Endurtakið ef þörf er á. Fylgið eftir með Love Curl hárnæringu eða maska.

Við mælum með!